Hææ, Kara skrifar. Nú, mér leiðist svakalega mikið og hef ákveðið að gera lista um mikilvægustu atburði sem gerst hafa í síðast liðinni viku;
*Skólinn er byrjaður
*Ísland keppir um gullið á Ólympíuleikunum í Handbolta
*Það er Menningarnótt í kvöld, og mig vantar einhvern til að fara með!!!

Það verður fullt að gera í bænum í kvöld, ætla ekki allir út? Allaveganna, herbergið mitt er tilbúið! Það þarf bara að mála og svo er hægt að fara að raða inn! Það eru líka um það bil átta dagar í það að söngskólinn byrji^^! Svo það er um að gera að fara að hlakka til, það mun vera nóg að gera þennan mánuðinn!

Jæja, ég held að ég fari bara að kveðja, þetta átti bara að vera stutt blogg!

Bæjó!
-Kara... Congratz, you just spotted an angel! (A)